nemendafræðsla prufa 1

nemendafræðsla prufa 1

Á Jörðinni má alls staðar finna líf. Jafnvel ólíklegustu afkimar plánetunnar okkar geyma lífverur – hyldýpi úthafanna, bullandi hverir, hæstu fjallstindar og ísköld vötn undir gríðarþykkum íshellum pólanna. Lífverur Jarðar eru svo margbreytilegar að talið er að við höfum aðeins uppgötvað lítinn hluta allra tegunda. Fjölbreytni lífsins lýsum við með hugtakinu líffræðileg fjölbreytni. Ef við horfum á Jörðina í heild sinni er lífið afar fjölbreytt og lífverurnar taka á sig ótal myndir og form, allt frá því að vera örsmáar bakteríur, ósýnilegar berum augum, upp í risahvali, á við tíu strætisvagna að þyngd.

 

En þessar tegundir lifa ekki allar við sömu skilyrði eða á sömu svæðum. Hvert svæði Jarðar hefur sína eiginleika sem henta mismunandi lífverum. Lífverur sem búa í heitum frumskógum Amazon eða Saharaeyðimörkinni myndu ekki dafna á Íslandi, og öfugt. Á sama hátt komast lífverur úthafanna ekki af á þurrlendi. Þannig skapar hvert svæði og hver afkimi Jarðar sinn sérstaka heim með lífverum sem líður vel í sínu umhverfi. Lífverur hvers svæðis mynda sitt eigið afmarkaða vistkerfi, sem geta bæði verið víðfeðm sem og agnarsmá, og fjölbreytileika tegunda innan allra þessara vistkerfa er einnig lýst með hugtakinu líffræðilegum fjölbreytileika. Þannig segir hugtakið ekki aðeins til um fjölbreytileika alls lífs á Jörðinni heldur einnig til um hve margar og fjölbreyttar tegundir lífvera búa á afmörkuðum svæðum og vistkerfum.