Fræðsla & leikur fyrir unga sem aldna!
Veldu þér flokk!
Hvað er Fróðleiksbrunnurinn?
Heiðar eru slétt fjalllendi með aflíðandi hlíðum. Þær finnast út um allt Ísland og eru oftast óbyggðar á okkar tímum en áður fyrr fundust þar stundum lítil kot, svokölluð heiðarbýli. Heiðar eru bæði lágar eða háar, stuttar eða langar, grónar eða grýttar, og um þær liggja oft fornar þjóðleiðir eða akvegir. Í fallegu veðri er gaman að fara um heiðarnar og skoða plöntur og dýr, en oft getum við líka lent í þoku og lélegu skyggni þar.
Hvað haldið þið að sé líklegt að sjá uppi á heiðum? Hvað getur verið erfitt að sjá nema með heppni eða mikilli þolinmæði?