Kosning á sögudýri

Stórkrossi nýtt sögudýr Náttúruhúss í Nesi!

Kosningin stóð yfir frá vori 2023 fram til loka ágúst og er nú lokið. Stórkrossi hlaut flest atkvæði og mun því fá hið mikilvæga hlutverk að taka á móti nemendum, fjölskyldum og öðrum gestum sýningarinnar þegar hún verður opnuð og leiða um undraheima hafsins.

Náttúruminjasafn Íslands vinnur að gerð grunnsýningar í nýjum höfuðstöðvum safnsins á Seltjarnarnesi, Náttúruhúsi í Nesi. Af því tilefni var sögudýr sýningarinnar valið í opinni kosningu hér á Fróðleiksbrunninum.

Þema hinnar nýju sýningar er hafið og lífríki þess, líffræðileg fjölbreytni og loftslagsbreytingar. Sögudýrsins var því leitað í fjörunni og stóð valið á milli átta dýra sem öll skipa sinn sess í vistkerfi fjörunnar. Vel á annað þúsund atkvæði bárust og skiptust þau svona á milli fjörudýranna:

Stórkrossi – 37%
Kuðungakrabbi – 19%
Bogkrabbi – 16%
Marígull – 14%
Þangdoppa – 5%
Fjörukarl – 4%
Nákuðungur – 3%
Beitukóngur – 2%


Við á Náttúruminjasafninu þökkum öllum innilega fyrir að taka þátt í kosningunni með okkur. Fræðast má um fjörudýrin sem valið stóð um á síðunum hér að neðan.

Fjörudýrin