Hvítlaukur spírar

Hvítlaukur spírar

Markmið og tilgangur

Að fylgjast með því hvernig hvítlaukur myndar rætur og laufblöð.

  • Árstíð: Allt árið
  • Aldur 5+

Hvítlaukur spírar

Markmið og tilgangur

Að fylgjast með því hvernig hvítlaukur myndar rætur og laufblöð.

  • Árstíð Allt árið
  • Aldur 5+

Við þurfum

  • Hvítlauk
  • Bómull
  • Litla krukku
  • Vatn

Efni og áhöld sem við þurfum í tilraunina: Krukka eða skál, bómull, hvítlaukur og vatn

Framkvæmd

  • Takið hvítlaukinn og skiptið honum í hvítlauksrif.
  • Setjið blauta bómull í botn krukkunnar.
  • Komið einu hvítlauksrifi ofan í krukkuna með breiðari endann niður í bómullina.
  • Setjið krukkuna út í glugga, vökvið reglulega þannig að rifið rétt snerti vatnsborðið.
  • Fylgist með hvað gerist næstu fjórar vikurnar.

Hvert hvítlauksrif er lagt ofan á bómullina í skálinni með breiðari endann niður

Hvítlauskrifin eru vökvuð reglulega

Hvað gerist?

Þegar hvítlaukur kemst í snertingu við vatn byrjar hann að mynda rætur sem vaxa niður í bómullina. Fljótlega vex stöngull sem leitar upp í birtuna og á stönglinum sitja laufblöðin. Eitt stakt rif verður þannig að nýrri plöntu.

Hvert rif myndar stöngul sem leitar upp í birtuna og rætur sem vaxa niður

Vissir þú?
  • Til eru afbrigði af hvítlauk sem ekki mynda rif.
  • Að rækta hvítlauk með hvítlauksrifjum er í rauninni fjölgun án þess að nota fræ.
  • Að blöðin á hvítlauk eru æt en þau má nota í salöt.
  • Gamalt nafn á hvítlauk er geirlaukur því að hann skiptist í rif eða geira.

Orðalisti:

  • Rif – Einn hvítlaukur skiptist í mörg rif en hvert rif getur orðið að nýjum einstaklingi.

Þessi tilraun ýtir undir forvitni og hvetur til rannsóknar og könnunar fyrir börn í leikskóla og yngsta stigi grunnskóla og gefur nemendum tækifæri til að efla orðaforða sinn á sviði náttúrufræði ásamt því að kynna fyrir nemendum ferla og hringrásir í náttúrunni.

Þessi tilraun styður enn fremur við hæfniviðmið um verklag, nánar tiltekið vinnubrögð og færni í náttúrufræði við lok 4. bekkjar.

Námsbækur sem fjalla um viðfangsefni tilraunarinnar á yngsta stigi grunnskóla er t.d. Komdu og skoðaðu umhverfið (bls. 14) eftir Sigrúnu Helgadóttur, Lifandi náttúra, líffjölbreytileiki á tækniöld, ritstjóri Andri Már Sigurðsson og Náttúran allan ársins hring eftir Sólrúnu Harðardóttur.

Þessa tilraun er tilvalið að gera samhliða tilrauninni Karsi i krukku og fá nemendur til að velta fyrir sér muninum á fjölgun með fræi og vaxtaræxlun.

Efnisorð: Náttúrufræði, líffræði, plöntur, rætur, laufblöð, vaxtaræxlun.

Efni og áhöld sem við þurfum í tilraunina: Krukka eða skál, bómull, hvítlaukur og vatn

Hvert hvítlauksrif er lagt ofan á bómullina í skálinni með breiðari endann niður

Hvert rif myndar stöngul sem leitar upp í birtuna og rætur sem vaxa niður