Einbúakrabbi

Einbúakrabbi-22

Kuðungakrabbi er krabbadýr sem tekur sér bólfestu í tómum kuðungum annarra snigla. Það neyðist hann til að gera því afturendinn á honum er mjúkur og því gómsætur biti fyrir sjávarrándýr. Eftir því sem hann stækkar þarf hann sífellt að finna sér stærri kuðung til að búa í og skortur á hagstæðum tómum kuðungum getur því haft áhrif á stofnstærð kuðungakrabbans. Oft grípa þeir því það sem kló er næst og ef mikið er af rusli á búsvæði þeirra geta þeir kosið að nýta sér það sem heimili, til dæmis plastglös eða tappa en sjaldan veitir það næga vörn gegn öðrum dýrum. Tilraunir hafa verið gerðar á lífsháttum kuðungakrabba samfara breytingum á borð við súrnun sjávar og benda þær til þess að kuðungakrabbar verði sljórri þegar sýrustig lækkar. Þá skipta þeir til dæmis síður um skel þegar þeir þyrftu þess stærðar sinnar vegna en það gerir þá berskjaldaðri gagnvart öðrum rándýrum.

Kuðungakrabbinn lifir á smádýrum sem hann veiðir á sjávarbotni en einnig getur hann grafið upp bráð. Hann er algengur frá neðri fjörumörkum og niður á um 100 metra dýpi og finnst við strendur Norður-Íshafs og Norður-Atlantshafs.

Loftlagsbreytingar

Heiðar eru slétt fjalllendi með aflíðandi hlíðum. Þær finnast út um allt Ísland og eru oftast óbyggðar á okkar tímum en áður fyrr fundust þar stundum lítil kot, svokölluð heiðarbýli. Heiðar eru bæði lágar eða háar, stuttar eða langar, grónar eða grýttar, og um þær liggja oft fornar þjóðleiðir eða akvegir.