Beitukóngur
Beitukóngur
Beitukóngur
Ég er kóngur sjávarsniglanna í hafinu og með þeim stærri sem finnast við Ísland! Kuðungurinn sem ég bý í getur verið fjölbreyttur að lit, hvítur, gulur eða brúnn og stundum röndóttur. Á honum er hurð sem ég nota til að skella í lás svo enginn nái mér.
Kjóstu mig – því ég er kóngurinn!
Beitukóngur er stór sjávarsnigill sem er algengur um allt Norður-Atlantshafið. Kuðungur hans getur verið hvítur, gulur eða brúnn og jafnvel röndóttur. Þegar snigillinn dregur sig inn í kuðunginn getur hann skellt í lás á eftir sér þar sem hann er með loku sem hylur opið á kuðungnum. Þetta hjálpar honum að verjast dýrum sem vilja éta hann. Beitukóngurinn dregur nafn sitt af því að hann var gjarnan nýttur sem beita.
Lýsing
Beitukóngur (fræðiheiti: Buccinum undatum) er stór sjávarsnigill sem tilheyrir fylkingunniNotað til að flokka lífverur í skylda hópa innan ríkja lífvera eins og dýra- og plönturíkisins. Lindýr og skrápdýr eru dæmi um fylkingar skyldra dýra. lindýr eins og aðrir sniglar. Hann hefur sér til varnar snúna skel sem kallast kuðungur. Kuðungurinn er venjulega 7–10 cm á hæð og hefur gróft snúið mynstur. Hann getur verið hvítur, gulur eða brúnn, og jafnvel röndóttur. Þegar snigillinn dregur sig inní kuðunginn getur hann skellt í lás á eftir sér þar sem hann er með loku sem hylur opið á kuðungnum. Þetta hjálpar honum að verjast dýrum sem vilja éta hann.
Lifnaðarhættir
Kuðungurinn hjálpar beitukónginum að verjast afrániAfrán er hugtak sem notað er til að lýsa því þegar rándýr (afræningjar) nærast á öðrum dýrum með því að éta þau. en hann er vinsæl fæða margra fiska og krabbadýra. Beitukóngur er sjálfur kjötæta og er fæða hans fjölbreytt en hann lifir aðallega á samlokum, svo sem kræklingi, en einnig burstaormum, marflóm og öðrum smákrabbadýrum sem hann kemst í færi við.
Dreifing
Beitukóngurinn lifir í köldum sjó og er algengur um allt Norður-Atlantshafið. Hann finnst allt frá neðri hluta fjörunnar og niður á um 1200 metra dýpi. Tegundin er útbreidd í hafinu umhverfis Ísland og finnst þá gjarnan á 0–110 m dýpi. Í Breiðafirði hafa farið fram ítarlegar rannsóknir á beitukóngum sem hafa leitt í ljós að innan fjarðarins finnast margir aðgreindir stofnarHópar lífvera af sömu tegund sem lifa í einu og sama vistkerfinu..
Helstu ógnir
Beitukóngur þykir víða herramannsmatur en nafn sitt dregur hann af því að hann var gjarnan nýttur sem beita. Rannsóknir hafa sýnt að beitukóngi er að fækka víðast hvar og er það mögulega vegna mengunar.
Karl Gunnarsson. 2010. Beitukóngur. Fjaran og hafið. https://www1.mms.is/hafid/dyr.php?val=3&id=105.
Agnar Ingólfsson, Hrefna Sigurjónsdóttir, Karl Gunnarsson og Eggert Pétursson. 1986. Fjörulíf. Ferðafélag Íslands, Reykjavík.
Guðmundur P. Ólafsson. 1986. Algeng fjörudýr. Námsgagnastofnun. Reykjavík.
Ingimar Óskarsson. 1982. Skeldýrafána Íslands: I Samlokur í sjó. II Sæsniglar með skel. Prentsmiðjan Leiftur hf, Reykjavík.