Þangdoppa

Þangdoppa

Þangdoppa

Ég er klár lítill snigill og grænmetisæta sem kann að fela mig fyrir óvinum mínum. Ég á heima í þanginu í fjörunni og klæði mig eins og þangbóla. Þess vegna þekkja óvinir mig ekki í þanginu. Sniðugt, finnst ykkur ekki?
Kjóstu mig – því ég er grænmetisæta í felubúningi!

Þangdoppa er lítill sjávarsnigill sem lifir í þangvöxnum grýttum fjörum um allt Ísland. Hún nærist bæði á smáþörungum sem vaxa á þangi en einnig á sjálfu þanginu sem hún skrapar upp með skráptungu sinni. Þangdoppan er yfirleitt einlit, dökkgrá eða brúnleit, gul, rauðleit eða jafnvel röndótt. Þetta virkar sem góður felubúningur því útlit hennar minnir óneitanlega á bólur bóluþangs og klóþangs sem hún lifir í.

Lýsing

Þangdoppa (fræðiheiti: Littorina obtusata) er lítill sjávarsnigill sem eins og aðrir sniglar tilheyra fylkingunniNotað til að flokka lífverur í skylda hópa innan ríkja lífvera eins og dýra- og plönturíkisins. Lindýr og skrápdýr eru dæmi um fylkingar dýra. lindýr en til lindýra teljast einnig samlokur, bertálknar og sæeyru ásamt fleiri dýrum. Þangdoppurnar hafa snúna skel sem nefnist kuðungur. Kuðungurinn hefur ekki háa strýtu heldur er sléttur og flatur á að líta, og er ekki nema um einn og hálfur cm á hæð. Þangdoppan er yfirleitt einlit, dökkgrá eða brúnleit, gul, rauðleit eða jafnvel röndótt. Þetta virkar sem góður felubúningur endar minnir hún óneitanlega á bólur bóluþangs og klóþangs sem hún lifir í. Erfitt getur verið að greina hana frá systurtegundinni maríudoppu (fræðiheiti: Littorina fabailis) og reyndar eru vísbendingar um að tegundirnar æxlist saman.

Lifnaðarhættir

Þangdoppur nærast bæði á smáþörungum sem vaxa á þangi en einnig á sjálfu þanginu sem þær skrapa upp með skráptungu sinni. Þangdoppur eru mikilvæg fæða stærri rándýra eða afræningjaDýr sem veiðir og nærist á öðrum dýrum. á borð við bogkrabba, nákuðunga, sjófugla og jafnvel krossfiska.

Þangdoppur hafa aðskilin kyn og innri frjóvgunÞegar frjóvgun eggs á sér stað inni í líkama móðurdýrs. Öfugt við ytri frjóvgun þar sem egg frjóvgast í sjónum utan líkama móður. en lirfur þangdoppa geta ekki svifið um í sjónum og dregur það úr möguleikum þeirra á að dreifa sér. Þær dreifast því með þangi sem rifnar upp í fjörunni og flýtur á haf út.

Dreifing

Þangdoppa lifir í þangvöxnum grýttum fjörum um allt land, og raunar við allt Norður-Atlantshafið. Hún heldur sig aðallega við neðri mörk fjöru og upp að miðbiki hennar (0–6 m dýpi) þar sem belti klóþangs, bóluþangs og sagþangs er gjarnan að finna enda er það hennar aðalfæða. Hún hefur þó fundist allt niður á 110 m dýpi.

Helstu ógnir

Vísbendingar eru um að hækkun á hitastigi sjávar og súrnun sjávar (lækkun á sýrustigi sjávar) leiði til aukinnar dánartíðni hjá þangdoppum en hvoru tveggja eru afleiðingar loftslagsbreytinga.

Cardoso, P. G., Grilo, T. F., Dionísio, G., Aurélio, M., Lopes, A. R., Pereira, R., … & Rosa, R. (2017). Short-term effects of increased temperature and lowered pH on a temperate grazer-seaweed interaction (Littorina obtusata/Ascophyllum nodosum). Estuarine, Coastal and Shelf Science, 197, 35-44.

Pizzolla, P.F 2008. Littorina obtusata Common flat periwinkle. In Tyler-Walters H. and Hiscock K. Marine Life Information Network: Biology and Sensitivity Key Information Reviews, [on-line]. Plymouth: Marine Biological Association of the United Kingdom. [cited 05-11-2022]. Aðgengilegt: https://www.marlin.ac.uk/species/detail/1487

Rosenberg, G. 2009 Malacolog 4.1.1: A Database of Western Atlantic Marine Mollusca.

Sotelo, G., Duvetorp, M., Costa, D. et al. Phylogeographic history of flat periwinkles, Littorina fabalis and L. obtusata. BMC Evol Biol 20, 23 (2020). https://doi.org/10.1186/s12862-019-1561-6

Agnar Ingólfsson, Hrefna Sigurjónsdóttir, Karl Gunnarsson og Eggert Pétursson. 1986. Fjörulíf. Ferðafélag Íslands, Reykjavík.

Guðmundur P. Ólafsson. 1986. Algeng fjörudýr. Námsgagnastofnun. Reykjavík.

Ingimar Óskarsson. 1982. Skeldýrafána Íslands: I Samlokur í sjó. II Sæsniglar með skel. Prentsmiðjan Leiftur hf, Reykjavík.

https://www.visindavefur.is/svar.php?id=58496).

Kynntu þér næsta dýr

Beitukóngur