Litaðir sellerístönglar
Litaðir sellerístönglar
Markmið og tilgangur
Að sýna fram á það að vatn flyst upp eftir plöntum.
- Árstíð: Allt árið
- Aldur 6+

Markmið og tilgangur

Markmið og tilgangur
Að skoða birkifræ og læra að þekkja fræreklana þar sem fræin eru geymd.
- Árstíð Haust
- Aldur 6+
Við þurfum
- 3-4 krukkur eða litla vasa
- 3-4 sellerístilka með laufblöðum
- Matarlit: Gulan, rauðan og bláan
- Dropateljara
- Vatn
- Hníf

Efni og áhöld sem við þurfum í tilraunina: Sellerístönglar með blöðum, há glös, matarlitir, vatn og hnífur
Framkvæmd
- Hálffyllið krukkurnar af vatni.
- Litið vatnið gult með því að setja 10-30 dropa af gulum matarlit í eina krukku. Búið til rautt og blátt vatn á sama hátt. Skolið dropateljara vel með vatni á milli lita.
- Grænn litur er búinn til með því að setja 10 dropa af gulum matarlit ásamt 20 dropum af bláum lit.
- Skoðið selleríið eftir 3-5 daga.
- Þegar tilrauninni er lokið er tilvalið að fá sér mislitt ferskt sellerí ofan á brauðið eða í salatið.

Sellerístönglarnir eru settir í glös með lituðu vatni

Tilbúnir litaðir sellerístönglar
Hvað gerist?
Stilkarnir drekka í sig litaða vatnið. Æðarnar í stilkunum flytja vatnið upp eftir plöntunni en þær eru afar smáar og ekki sýnilegar berum augum. Tilvist æðanna og virkni þeirra kemur hins vegar í ljós vegna þess að blöð sellerísins litast af sama lit og vatnið sem stilkarnir standa í.
Vissir þú?
- Sellerí er af sveipjurtaætt eins og gulrætur.
- Þessi tilraun ýtir undir forvitni og hvetur til rannsóknar og könnunar fyrir börn á yngsta stigi grunnskóla og gefur nemendum tækifæri til að efla orðaforða sinn á sviði náttúrufræði ásamt því að kynna fyrir nemendum ferla og hringrásir í náttúrunni.
- Þessi tilraun styður enn fremur við hæfniviðmið um verklag, nánar tiltekið vinnubrögð og færni í náttúrufræði við lok 4. bekkjar.
- Hægt er að nota tilraunina fyrir nemendur á unglingastigi grunnskóla en fjallað erum efni hennar í kennslubókinni Lífheimurinn, litróf náttúrunnar eftir Susanne Fabricius o.fl.
- Efnisorð: Náttúrufræði, líffræði, plöntur, æðplöntur, æðakerfi í plöntum.

Tilbúnir litaðir sellerístönglar

Efni og áhöld sem við þurfum í tilraunina: Sellerístönglar með blöðum, há glös, matarlitir, vatn og hnífur

Sellerístönglarnir eru settir í glös með lituðu vatni